Fara í efni  

Opið hús / kynningarfundur vegna breytinga á deiliskipulagi Skógarhverfis

Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfangi verður fimmtudaginn 9. maí næstkomandi frá kl. 12:30 til 16:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18.

Breytingin felst í að 7 lóðum fyrir einbýlishús við Fagralund er breytt í 12 lóðir fyrir rað- og parhús. Breyting á Akralundi 8, 10, 12 og 14 felst í að heimila að í hverju húsi má vera 4-6 íbúðir í stað fjögurra.

Eftir kynningu á ofangreindum skipulagsbreytingum verða þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00