Fara í efni  

Opið hús hjá slökkviliðinu á miðvikudag

Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri býður alla velkomna í heimsókn á miðvikudag.
Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri býður alla velkomna í heimsókn á miðvikudag.

Á miðvikudag er 1-1-2 dagurinn sem haldinn er þann 11. febrúar ár hvert til að minna okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 1-1-2 – eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.

Í ár er þess sérstaklega minnst að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi. Fyrsta símtalinu í 1-1-2 var svarað þann 1. janúar 1996.

Af þessu tilefni verður opið hús á slökkvistöðinni Akranesi, Kalmansvöllum 2 frá kl. 16 –18. Fulltrúar frá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar, Lögreglunni á Vesturlandi, Neyðarlínu, sjúkraflutningum HVE á Akranesi, Björgunarfélagi Akraness og Slysavarnadeildinni Líf verða á staðnum.

Hægt verður að skoða tæki og búnað. Boðið verður upp á kaffi, kleinur og djús fyrir börnin.

Við hvetjum íbúa eindregið til að líta við.

Viðburðurinn á Facebook


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu