Fara í efni  

Opið hús á 112 deginum

Þann 11. febrúar ár hvert er 112 dagurinn haldinn. Á Akranesi verður opið hús hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar frá kl. 12-15. Fróðleg og skemmtileg dagskrá er í boði, meðal annars kynning á starfi Slökkviliðsins og Björgunarfélags Akraness. Lögreglan og sjúkraflutningsmenn verða á staðnum sem og einnig Rauði Krossinn sem mun kynna þjálfun í skyndihjálp.

Húsið er öllum opið og eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt í dagskránni.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu