Fara í efni  

OKKAR AKRANES - Kosning er hafin!

Hugmyndasöfnunin „Opin og græn svæði“ á Okkar Akranes var haldin dagana 21. febrúar til 7. mars sl. Þátttakan var mjög góð, alls bárust 100 tillögur.

Skipulags- og umhverfisráð hefur ákveðið að senda 20 tillögur áfram í kosningu en nokkrum þeirra var steypt saman þar sem þær tengdust. Hægt er að skoða þær hugmyndir sem kosið er um hér.

Um helmingur af þeim hugmyndum sem bárust uppfylltu ekki þau skilyrði sem sett voru til þess að hugmynd ætti möguleika á að komast áfram. Það voru meðal annars hugmyndir sem vörðuðu viðhald eða rekstur en ekki fjárfestingar. Þá voru margar hugmyndir sem áttu við annað en opin græn svæði, hugmyndir þar sem kostnaður var of mikill en viðmiðið er 10. m.kr. í heildarkostnað, eða að hugmynd samrýmdist ekki skipulagi eða stefnu bæjarins og var ekki innan bæjarmarka.

Skilyrðin í heild sinni má nálgast hér.

Aðrar hugmyndir sem uppfylltu skilyrði en komust ekki áfram í kosningu vörðuðu meðal annars skipulag sem er á áætlun, framkvæmd sem er í gangi eða gert er ráð fyrir á þessu eða næsta ári.
Þá áttu margar hugmyndir við margt sem er í nýja aðalskipulaginu og gert er ráð fyrir að verði framkvæmt, en samræmdust ekki þessu verkefni vegna of mikils kostnaðar miðað við ramman í verkefninu. Sem dæmi voru tillögur um hjóla- og göngustíga, sem verður unnið í jafnt og þétt og sama á við um stækkun bílastæðis í skógræktinni, sem er inni á deiliskipulagi fyrir svæðið.

Öllum sem sendu inn hugmyndir og gáfu sér tíma til að taka þátt í þessu fyrsta verkefni sem tengist “Okkar Akranes” eru færðar sérstakar þakkir fyrir þátttökuna. Kosning um bestu tillögurnar stendur svo yfir frá 28. mars til 11. apríl.

Reglur um kosningarnar er að finna hér.

Kjóstu þína uppáhálds hugmynd hér! 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00