Fara í efni  

Ókeypis námskeið í tölvuleikjaforritun fyrir nemendur og foreldra 7.-10. bekkjar

Grunnskólarnir á Akranesi bjóða nemendum í 7.-10. bekk og foreldrum þeirra upp á ókeypis námskeið í tölvuleikjaforritun fyrir byrjendur. Leiðbeinendur eru þær Hjördís Dögg Grímarsdóttir, Nanna María Elfarsdóttir og Friðrika Ýr Einarsdóttir kennarar í grunnskólunum á Akranesi. Námskeiðið er hluti af frístundavali og kostar ekkert, hvorki fyrir nemendur né foreldra og geta nemendur einnig komið án foreldra.

Námskeiðið fer fram í tölvustofu Grundaskóla og verður það haldið á eftirfarandi dögum:

  • 09. apríl kl. 16:00-19:00
  • 11. apríl kl. 11:00-14:00
  • 15. apríl kl. 16:00-19:00
  • 18. apríl kl. 11:00-14:00
 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00