Fara í efni  

Nýtt Skógarhverfi - gatna- og veituframkvæmdir

Kæri viðskiptavinur á Akranesi

Nú eru að fara í gang gatna- og veituframkvæmdir við nýtt Skógarhverfi þ.e. hlutar 3C og 5 skv. skipulagi. Aðilar að framkvæmdinni eru Akraneskaupstaður, Veitur, Míla og Ljósleiðarinn. Verktaki í verkinu er Borgarverk.

Í upphafi framkvæmda verður gerður vinnuvegur inn á svæði út frá Akranesvegi. Þessar framkvæmdir eru þegar hafnar, biðlum við til vegfarenda að keyra framhjá vinnusvæðinu með aðgát og virða hraðatakmarkanir sem settar hafa verið upp.
Í fyrsta áfanga verður einnig gerð ný tenging inn á Jókuskóga, sú gata mun koma á milli Asparskóga 15 og 17, eru þær framkvæmdir einnig á upphafsmetrunum. Vegna þessarar framkvæmda má búast við umferð vörubíla um Asparskóga. Búast má við að þessi áfangi taki um einn mánuð.

Næstu áfangar verða svo ný gata við Lækjaskóga, Tjarnaskóga, Laufskóga og Akralund, fyrirhugað er að þær götur verði klárar síðla sumars. Því næst verður hafist handa við fyrri hluta Skógarlundar og gerð ofanvatnsrása þessi áfangi mun klárast næsta vetur. Þá verður fjórða áfanga, þ.e. seinni hluti Skógarlundar lokið haustið 2024.

Á framkvæmdartíma mun verktaki vera með vinnubúðir sínar á lóð Asparskóga 23. Öll þungaumferð mun fara um nýjan vinnuveg sem tengist upp á Akranesveg að Jókuskógum undanskyldum.

Hægt er að fylgjast með framkvæmdinni hér: https://www.veitur.is/bilanir/blt35f330c4ce637a06

Kveðja, starfsfólk Veitna


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00