Nýtt deiliskipulag Kirkjubrautar og breyting á skipulagi nærliggjandi reita
Auglýsing vegna nýs deiliskipulags Kirkjubrautar og breytingar á deiliskipulagi Arnardalsreits, Stofnanareits, Akratorgsreits og Miðbæjarreits.
Nýtt deiliskipulag Kirkjubrautar fyrir gatnarýmið við Kirkjubraut og Kalmansbraut sem afmarkast af Merkigerði til suðurs og Esjubraut til norðurs, samtals um 2 ha svæði. Tillagan nær yfir breytingar á göturými við Kirkjubraut og Kalmansbraut. Markmið skipulagstillögunnar er gerð bæjargötu sem býður upp á fjölbreytta samgöngumáta; gangandi, hjólandi, bíla og almenningssamgöngur. Jafnframt að styðja við atvinnulíf á jarðhæð.
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar 2026 að nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubraut verði auglýst skv. 1. mgr. 41. Gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að setja fram athugasemdir á Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/284). Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi föstudaginn 27. mars 2026 í gegnum Skipulagsgátt.
Breyting á deiliskipulagi Arnardalsreits (289/2025), Stofnanareits (287/2025), Akratorgsreits (286/2025) og Miðbæjarreits (290/2025) til samræmis við nýtt deiliskipulag Kirkjubrautar fyrir gatnarýmið við Kirkjubraut og Kalmansbraut sem afmarkast af Merkigerði til suðurs og Esjubraut til norðurs, samtals um 2 ha svæði.
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar 2026 að nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubraut verði auglýst skv. 1. mgr. 41. Gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að setja fram athugasemdir á Skipulagsgátt með því að skoða tengd mál (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/284) eða leita beint eftir málsnúmerum innan sviga hér fyrir ofan innan Skipulagsgáttar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi föstudaginn 27. mars 2026 í gegnum Skipulagsgátt.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015