Fara í efni  

Nýr aðstoðarskólastjóri við Tónlistarskóla Akraness

Hér er Birgir Þórisson við undirleik í athöfn.
Hér er Birgir Þórisson við undirleik í athöfn.

Birgir Þórisson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri við Tónlistarskólann á Akranesi. Hann tekur við stöðunni af Elfu Margréti Ingvadóttur en hún hefur gengt starfinu í afleysingum frá haustinu 2018 fyrir Skúla Ragnar Skúlason, sem nú hefur látið af störfum við skólann. Birgir hefur starfað við skólann frá árinu 2011 og verið deildarstjóri undanfarin tvö ár. 

Birgir hefur lokið miðprófi í rytmiskum píanóleik frá tónlistarskóla FÍH og einleikaraprófi B.Mus. í klassískum píanóleik frá Listaháskóla Íslands. Birgir hefur einnig lokið meistaraprófi í Forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur auk þess margvíslega reynslu af stjórnun ýmissa tónlistarverkefna t.d. í tengslum við leiksýningar auk þess sem hann var tónlistarstjóri Söngkeppni framhaldsskólanna 2018-19.

Auglýsing um starfið var birt um miðjan maí og var umsóknarfrestur til og með 31. maí. Alls bárust þrjár umsóknir um stöðuna. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00