Fara í efni  

Niðurstöður rannsóknar á högum og líðan nemenda á miðstigi

Á opnum fundi skóla- og frístundaráðs þriðjudaginn 30.maí síðastliðinn voru kynntar niðurstöður rannsóknar á högum og líðan nemenda í 5., 6. og 7. bekk grunnskólanna á Akranesi. Skýrslan fjallar um ýmsa þætti í lífi barnanna eins og líðan í skóla, stríðni, tölvuleikjanotkun, ástundun íþrótta og samveru með foreldrum. Um 85% nemenda á þessum aldri tók þátt í könnunni og því gefur hún góða mynd af því hvað er að gerast í lífi barnanna. Skýrsluna má nálgast hér.

Á sama fundi voru kynntar niðurstöður um vímuefnaneyslu barna og ungmenna í 8.-10.bekk. Má segja að ungmenni á Akranesi eru til fyrirmyndar og er ástæða til að hrósa unglingum og foreldrum þeirra. Niðurstöðurnar má finna hér.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00