Fara í efni  

Námsstyrkur Akraneskaupstaður árið 2018

Sævar Freyr bæjarstjóri og Karólína Andrea Gísladóttir við útskriftina sl. laugardag. Ljósmynd: Mynd…
Sævar Freyr bæjarstjóri og Karólína Andrea Gísladóttir við útskriftina sl. laugardag. Ljósmynd: Myndsmiðjan.

Við útskrift Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 26. maí síðastliðinn afhenti Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri námsstyrk Akraneskaupstaðar. Námsstyrkur Akraneskaupstaðar hefur verið veittur frá árinu 1991 og er í dag rúmar 700 þúsund krónur. Styrkurinn er veittur til nemenda sem hafa sýnt afburða námsárangur eða ástundun náms. Að þessu sinni var það Karólína Andrea Gísladóttir sem fékk styrkinn.

Karólína Andrea Gísladóttir útskrifaðist af náttúrufræðibraut í maí síðastliðinn. Karólína Andrea stefnir á nám í læknisfræði við Háskóla Íslands haustið 2018.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00