Fara í efni  

Myndsmiðjan afhendir filmusafn til Ljósmyndasafns Akraness

Ágústa Friðriksdóttir, Guðni Hannesson og Ella María Gunnarsdóttir forstöðumaður menningar- og safna…
Ágústa Friðriksdóttir, Guðni Hannesson og Ella María Gunnarsdóttir forstöðumaður menningar- og safnamála.

Þann 17. apríl síðastliðinn afhentu ljósmyndararnir Ágústa Friðriksdóttir og Guðni Hannesson filmusafn sitt til Ljósmyndasafns Akraness. Filmusafnið er frá þeim tíma er þau starfræktu Myndsmiðjuna eða allt frá upphafsárinu 1994 fram til 2004. Mikill hluti myndanna sem þau Ágústa og Guðni hafa tekið eru stúdíómyndir auk þess sem eru einkar atorkusöm við að mynda bæjarbrag og sögu Akraness. Safnið er mikið að vöxtum, spannar rúma 10 hillumetra og síðar munu bætast við kópíur og stafrænar myndir. Það má því með sanni segja að Skagamenn hafi dottið í lukkupottinn með afhendingunni því einkaskjalasafn af þessari stærðargráðu er ómetanleg heimild um samtíma okkar.

Það ber því vel við að fá slíka afhendingu á þeim tímamótum sem Héraðsskjalasafn Akraness stendur á en í dag fagnar það 25 ára afmæli. Ljósmyndasafn Akraness er deild í Héraðsskjalasafninu og er nýorðið 15 ára og munu söfnin setja upp sýningu á myndum þeirra Ágústu og Guðna á afmælisárinu.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00