Mikill undirbúningur fyrir tónleika Sinfó í íþróttahúsinu
Undirbúningur fyrir tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í nýju íþróttahúsi Skagamanna við Jaðarsbakka stendur nú sem hæst. Líkt og fram hefur komið verða tónleikarnir tvennir og haldnir þann 15. maí næstkomandi, daginn fyrir kosningar. Aðgangur verður ókeypis og markmiðið er að samanlagt nái um þúsund gestir að njóta tónleikanna, þar af tæplega 600 á tónleikunum um kvöldið.
Tónleikarnir eru hluti af svokölluðum Stefnumótum Sinfó við áheyrendur víða um landið. Í fyrra heimsótti sveitin nokkra þéttbýlisstaði á Suðurlandi en nú er ferðinni heitið upp á Akranes.

Verkefnið er afar umfangsmikið enda hefur undirbúningur staðið yfir í tvö ár. Fyrri tónleikarnir eru ætlaðir yngri kynslóðinni og byggja á syrpum og lögum úr Vísnabókinni, en elstu leikskólabörnin og börn í skólafrístund á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit munu fjölmenna á þá og börn úr skólakórum og barnakór kirkjunnar koma fram undir stjórn Lilju Margrétar Riedel og Katrínar Valdísar Hjartardóttur. Á þeim seinni sem hefjast klukkan 19 munu kórar og einsöngvarar af Vesturlandi eiga sviðið ásamt Sinfóníuhljómsveitinni.
Eins og gefur að skilja þarf að huga að ýmsu þegar svo stór hljómsveit og margir gestir mæta, en rúmlega 60 meðlimir hljómsveitarinnar spila á tónleikunum. Undirbúningur hefur falist í að teikna upp svið hljómsveitarinnar, huga að ýmsum tækni- og hljóðmálum, skipuleggja sætaskipan, bílastæði, aðstöðu sveitarinnar til undirbúnings og þannig mætti lengi telja.

Kórarnir æfa nú stíft fyrir stóru stundina enda ekki á hverjum degi sem kostur gefst á að syngja með stórum hópi af okkar færasta tónlistarfólki, en verkefnið er unnið í samstarfi Akraneskaupstaðar, Sinfóníuhljómsveitarinnar og kóranna. Eftirtaldir kórar munu koma fram auk þess sem Björg Þórhallsdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Kristín Sveinsdóttir og Benedikt Kristjánsson syngja einsöng en Hjörtur Páll Eggertsson er hljómsveitarstjóri:
- Freyjukórinn
- Kvennasveitin Skaði
- Karlakórinn Heiðbjört
- Karlakórinn Svanir
- Kvennakórinn Ymur
- Gleðigjafar
- Hljómur
- Kirkjukór Borgarness
- Kór Akraneskirkju
- Stemma
- Kór Saurbæjarprestskalls
- Sönghópurinn Hljómbrot
- Skagavókal
- Börn úr skólakórum
- Barnakór Akraneskirkju
Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að tæplega 600 gestir komist að á seinni tónleikum sveitarinnar. Gestum er bent á að mæta tímanlega enda aðeins hægt að hleypa inn meðan húsrúm leyfir og mögulegt að færri komist að en vilji enda munu tónleikarnir marka einn af hápunktum menningarlífsins á Akranesi og bjóða upp á einstaka upplifun fyrir alla aldurshópa.
Hér fyrir neðan er hlekkur á viðburðinn á Facebook og áhugasamir eru hvattir til að merkja þar við mætingu svo betur megi kortleggja áætlaðan gestafjölda.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





