Fara í efni  

Matjurtagarðarnir tilbúnir til notkunar

Akraneskaupstaður býður upp á leigu á matjurtagörðum nú eins og undanfarin ár. Garðarnir eru nú tilbúnir til notkunar og þeir sem þegar hafa sótt um garð ættu að hafa fengið tölvupóst þess efnis.

Ef fleiri hafa áhuga á að sækja um garð eru enn næg pláss. Í boði er að leigja 100 fermetra reiti sem kosta 4.000 kr. eða 50 fermetra reiti á 2.000 kr. Matjurtagarðarnir eru eingöngu til úthlutunar fyrir íbúa sem hafa lögheimili á Akranesi.

Mælst er til þess að fólk noti ekki illgresiseitur í garða sína.

Garðarnir eru staðsettar norðan við verslun Bónus við Akranesveg (sjá mynd á meðfylgjandi korti).

Áhugasömum kartöfluræktendum má benda á að útsæði hefur verið selt í bæði Húsasmiðjunni og Ræktunarstöðinni Miðvogi, en á síðarnefnda staðnum er einnig hægt að kaupa ýmsar matjurtir sem henta vel í garðana.

Hægt er að sækja um garð með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Umsókn um matjurtagarð

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 433-1000, einnig er hægt að senda tölvupóst á akranes@akranes.is


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu