Fara í efni  

Matjurtagarðar 2020 - opnað fyrir umsóknir

Reitir í matjurtagörðum Akraneskaupstaðar eru lausir til útleigu fyrir sumarið 2020. Eins og fyrri ár verður í boði að leigja 100 fermetra reiti sem kosta kr. 4.000 og 50 fermetra reiti sem kosta kr. 2.000. Garðarnir verða tilbúnir til notkunar 23. maí næstkomandi. Athugið að matjurtagarðarnir eru eingöngu til úthlutunar fyrir íbúa sem hafa lögheimili á Akranesi.

Ekki verður hægt að velja sér reiti heldur er þeim úthlutað í númeraröð. Þetta fyrirkomulag verður viðhaft til að þétta og bæta nýtingu garðanna. Nánari upplýsingar veitir Sindri Birgisson umhverfisstjóri.

Hér er sótt um í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00