Málaði mynd af Akrafjalli og varð Íslandsmeistari
Vökudagar, menningarhátíð Akraness, stendur nú sem hæst og bærinn hefur iðað af menningarlífi frá því hátíðin var sett á fimmtudag.
Fjölbreytni listviðburða hefur vakið athygli, en til marks um hana var til að mynda sýning hins unga og efnilega Guðjóns Ívars Gränz sem varð Íslandsmeistari í málaraiðn á síðasta ári og keppti í framhaldinu á Norðurlandamótinu sem var haldið í Stokkhólmi í byrjun september. Guðjón Ívar hélt sýningu undir yfirskriftinni “Málaraiðn á keppnisvettvangi” á vinnustað föður síns, Málningarvinnu Carls, við Ægisbraut 11.
Vegna fjölda fyrirspurna var ákveðið að setja sýningu Guðjóns aftur upp og verður hún opin út hátíðina.

Gaman er að geta þess að Guðjón Ívar er fimmti ættliður málara og hafa allir fjórir ættliðirnir á undan honum verið málarameistarar. Guðjón er fæddur árið 2007, flutti átta ára gamall á Akranes og byrjaði að vinna undir leiðsögn föður síns aðeins 14 ára. Hann útskrifaðist úr Tækniskólanum með verðlaun fyrir framúrskarandi árangur og fékk einnig verðlaun fyrir árangur sinn þegar hann lauk sveinsprófi.
Sem fyrr segir landaði Guðjón svo Íslandsmeistaratitli í málaraiðn á síðasta ári, en þar þurftu keppendur meðal annars að spreyta sig á eigin valmynd þar sem þeir máttu velja myndefnið sjálfir. Guðjón ákvað að mála Akrafjall, útfærði það með blágrænum litum og fór heim með titilinn.

Eftir sigur á Íslandsmótinu öðlaðist Guðjón þátttökurétt á Norðurlandameistaramótinu þar sem hann var yngsti keppandinn af fimm. Eftir stífar æfingar í sumar hélt Guðjón til Stokkhólms en í keppninni þurfti meðal annars að mála hurðir, veggfóðra, vinna með skrautmálun, mála mynd sem sótti innblástur í byggingar Stokkhólms og mynd þar sem þurfti að nota að minnsta kosti þrjár mismunandi málunaraðferðir.
Noregur fór með sigur af hólmi í keppninni, en Guðjón öðlaðist þar dýrmæta reynslu.

Á sýningunni á Vökudögum var farið yfir leiðina frá Íslandsmeistaramótinu til Norðurlandamótsins. Æfingaverk voru til sýnis ásamt ljósmyndum frá mótunum, undirbúningi og vinnuferlinu. Þannig fengu gestir betur að kynnast því hvað felst í keppni í málaraiðn og þeirri vinnu og nákvæmni sem liggur að baki.
Við hlökkum til að fylgjast með þessum unga og efnilega málara í framtíðinni.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





