Fara í efni  

Lýsing á breytingu á aðalskipulagi vegna Dalbrautar - Þjóðbraut

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 24. janúar 2017 að auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi sem er hluti miðsvæðis M4, milli Dalbrautar og Þjóðbrautar, skv. 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst m.a. í því að miðsvæði M4 er stækkað til norðurs og mun svæðið vera með blandaðri landnotkun. S8/V6/A7 mun minnka að sama skapi. Breyting á deiliskipulagi Dalbraut - Þjóðbraut verður kynnt samhliða breytingu á aðalskipulagi.

Hér er hægt að nálgast lýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar sem og einnig í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18. Ábendingar varðandi tillögurnar eiga að vera skriflegar og berast fyrir 20. febrúar 2017 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is.

Vakin er athygli á því að opinn kynningarfundur á lýsingum fyrir Sementsreit og Dalbraut-Þjóðbraut verður haldinn þann 16. febrúar næstkomandi í sal Grundaskóla á Akranesi frá kl. 18:00 til 20:00. Auglýst nánar síðar.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00