Fara í efni  

Lýsing á breytingu á aðal- og deiliskipulagi vegna Skógarhverfis 3. og 4. áfanga

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu á breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 vegna Skógarhverfis og gerð deiliskipulags fyrir 3. og 4. áfanga Skógarhverfis skv. 30. gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Aðalskipulagsbreytingin nær til svæða Íb-13B í kafla 3.3.2., íbúðabyggð og O-9 og O-12 í kafla 3.3.6., opin svæði til sérstakra nota. Deiliskipulagið verður unnið í samræmi við meginatriði rammaskipulagsins frá 2005 með breyttum mörkum í norðri og austri.

Hægt er að nálgast lýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.

Ábendingum varðandi tillögugerðina eiga að vera skriflegar og berast fyrir 15. febrúar 2019 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00