Fara í efni  

Vökudagar vel heppnaðir

Mynd frá afmælishátíð Tónlistarskólans á Akranesi sem fagnar 60 ára starfsafmæli í ár.
Mynd frá afmælishátíð Tónlistarskólans á Akranesi sem fagnar 60 ára starfsafmæli í ár.

Vökudagar 2015 eru nú nýafstaðnir en þeir stóðu yfir í 11 daga, frá 29. október til 8. nóvember í þverrandi birtu haustsins. Alls voru um 65 viðburðir, þar á meðal 25 tónleikar, 13 myndlistarsýningar, sýningar leikskólanna og 5 skólasýningar, opin gallerí listamanna, ljósmyndasýningar, sögusýningar, námskeið og fyrirlestrar, rithöfundakvöld og markaður.

Tónlistarskólinn fagnaði 60 ára starfsafmæli á Vökudögum. Milli fimm- og sexhundruð manns sóttu viðburði í Tónlistarskólanum að því tilefni en boðið var upp á afmælisköku eins og vera ber auk fjölbreyttra og metnaðarfullra tónleika núverandi og fyrrverandi nemenda skólans.

Gera má ráð fyrir að um eða yfir fjögurhundruð manns hafi skipulagt viðburði á einn eða annan hátt. Að sjálfsögðu spilar þar inn í öflugt kórastarf sem margir taka þátt í og skólaverkefni eins og til dæmis Ungir/gamlir sem fjöldi fólks tekur þátt í að skipuleggja. Skagamenn og gestir þeirra eru líka mjög virkir í að sækja viðburði og oftar en ekki var fullt hús gesta á hvern viðburðinn á fætur öðrum. Um 4000 gestir sóttu viðburði heim á Vökudögum, sem er varlega áætlað. Óskum við Skagamönnum öllum til hamingju með vel heppnaða Vökudaga!

Myndir frá hátíðinni má skoða hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00