Lilló Hardcore Fest um helgina í fimmta sinn
Harðkjarna- og pönkhátíðin Lilló Hardcore Fest verður haldin um helgina í fimmta sinn og er hluti af Vökudögum. Hátíðin stendur yfir bæði á föstudag og laugardag. Undanfarin ár hefur hún verið haldin í gamla Landsbankahúsinu, en það hús hefur nú verið selt undir starfsemi hótels og hátíðin því flutt í keilusal íþróttahússins við Vesturgötu.
“Mér líst mjög vel á nýja staðsetningu,” segir Bergur Líndal Guðnason einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. Sem fyrr eru það Ægisbraut Records, handhafar menningarverðlauna Akraneskaupstaðar á síðasta ári, sem standa að henni.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis. “All ages, engir miðar, engin vímuefni, engir sponsorar,” eins og segir í kynningarefni Lilló. “Það hefur alltaf verið þannig,” segir Bergur. “Við viljum að allir geti notið tónleikanna án þess að þurfa að biðja mömmu og pabba um pening.”

Á Lilló koma fram ýmsar þekktar hljómsveitir úr harðkjarna- og pönksenunni, meðal annars norska bandið Dødsdømt. “Það koma allir frítt fram á hátíðinni, meira að segja norska bandið,” segir Bergur. “Við höfum komið okkur upp þannig orðspori að fólk er tilbúið til þess að gera það. Auðvitað væri gaman að geta greitt fólki fyrir, en við erum líka að nýta hátíðina til að gefa ungum krökkum tækifæri til að koma fram og ákváðum að láta það sama yfir alla ganga.”
Hátíðin fær styrki frá SSV og Akraneskaupstað sem Bergur segir að nýtist í að greiða ferðakostnað norsku sveitarinnar.
Það verður að teljast óvenjulegt að tvær tónleikahátíðir séu haldnar sömu helgina í sama sveitarfélagi, Lilló Hardcore Fest og HEIMA-SKAGI sem fram fer á laugardag. Bergur segir að þessar hátíðir fari vel saman. “Okkar gestir eru að stórum hluta ungt fólk sem kemur að sunnan í bland við heimafólk. Þetta er ólíkur markhópur og svo droppa margir inn hjá okkur á milli þess sem þeir kíkja á tónleika HEIMA-SKAGA.”
Dagskráin hefst upp úr klukkan 18 á morgun, en á laugardag er stefnt að því að hefja tónleikahaldið síðdegis, um klukkan 15–16. “Við erum að blanda svolítið saman gömlu og nýju dóti. Innvortis og I Adapt munu koma fram, bönd sem voru að spila þegar maður var sjálfur að fara á sína fyrstu tónleika. Svo eru Skagahljómsveitir á borð við Gaddavír, Kex og Nöll. Þrumudætur sem voru í Músíktilraunum og Svarta María sem er líka ungt band. Gavin Portland, Grafnár, Dr. Gunni, ROHT og Ónæði. Við hlökkum mikið til og hvetjum fólk til að mæta.”

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





