Fara í efni  

Leikskólinn Vallarsel í 1. sæti í stofnun ársins - borg og bær 2017

Leikskólinn Vallarsel var í 1. sæti í Stofnun ársins - borg og bær árið 2017 í flokki minni stofnana. Niðurstöður úr könnun á Stofnun ársins - Borg og bær voru kynntar á Hilton Nordica þann 10. maí síðastliðinn. Leikskólinn hefur verið í efstu sætum í stofnun ársins frá upphafi þátttöku og var meðal annars í 2. sæti árið 2016.

Það eru félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem velja Stofnun ársins - Borg og Bær. Stærsti hópur félagsmanna St.Rv. starfar hjá Reykjavíkurborg en auk þess starfa félagsmenn hjá fyrirtækjum Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstað, Seltjarnarneskaupstað og fleirum. Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags, VR og St.Rv. auk fjármálaráðuneytisins sem tekur þátt í könnuninni fyrir alla ríkisstarfsmenn. Frekari niðurstöður úr könnuninni má sjá hér á heimasíðu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.  

Akraneskaupstaður sendir starfsfólki leikskólans Vallarsels innilegar hamingjuóskir með þennan árangur. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00