Fara í efni  

Leikskólarnir Garðasel og Vallarsel í 1. og 2. sæti í Stofnun Ársins - Borg og Bær 2015 í flokki minni stofnana

Starfsfólk leikskólans Garðasels.
Starfsfólk leikskólans Garðasels.

Leikskólinn Garðasel var í 1. sæti í Stofnun ársins - borg og bær árið 2015 í flokki minni stofnana og Leikskólinn Vallarsel var í 2. sæti í sama flokki. Niðurstöður úr könnun á Stofnun ársins - Borg og bær voru kynntar í Hörpunni í gær, þann 7. maí. Það eru félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem velja Stofnun ársins - Borg og Bær og er það í fjórða sinn þetta árið. Stærsti hópur félagsmanna St.Rv. starfar hjá Reykjavíkurborg en auk þess starfa félagsmenn hjá fyrirtækjum Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstað, Seltjarnarneskaupstað og fleirum. Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags, VR. og St.Rv. auk fjármálaráðuneytisins sem tekur þátt í könnuninni fyrir alla ríkisstarfsmenn. Frekari niðurstöður má sjá hér.

Við óskum leikskólunum tveimur innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00