Fara í efni  

Leigufélagið Bríet óskar eftir byggingaraðilum til þátttöku í uppbyggingu íbúða á Akranesi

Leigufélagið Bríet í samstarfi við Akraneskaupstað óska eftir byggingaraðilum til þátttöku í uppbyggingu íbúða á Akranesi

Viljayfirlýsing um fjölgun íbúða, eflingu stafrænnar stjórnsýslu og upplýsingagáttar var undirrituð í desember síðastliðinn milli Akraneskaupstaðar, Leigufélagsins Bríet, félagsmálaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Eitt af markmiðum þeirra yfirlýsingar er að stuðla að auknu húsnæðisöryggi leigjenda með því að bregðast við þeirri stöðu sem komin er upp í húsnæðismálum hvað varðar fyrirsjáanlegan skort á almennu leiguhúsnæði í sveitarfélaginu. Í takt við það markmið auglýsir Leigufélagið Bríet í samstarfi við Akraneskaupstað eftir byggingaraðilum til þátttöku í uppbyggingu íbúða á Akranesi. Helstu forsendur verkefnisins eru:

  • Uppbygging 48 íbúða og er Leigufélagið Bríet tilbúið til þess að skuldbinda sig til kaupa á allt að átta íbúðum.
  • Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnisins í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.
  • Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Stefnt er að því að semja við fleiri en einn verktaka í verkefninu.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is).

Nánari upplýsingar má einnig finna HÉR á veg Bríetar.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00