Fara í efni  

Laust starf verkefnastjóra á stjórnsýslu- og fjármálasviði

Akraneskaupstaður auglýsir eftir verkefnastjóra til starfa á stjórnsýslu- og fjármálasviði. 

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
  • Forysta um innleiðingu á  rafrænni þjónustu.
  • Umsjón með heimasíðu Akraneskaupstaðar og samskipti við þjónustuaðila vegna tölvumála og málakerfis Akraneskaupstaðar.
  • Skýrslugerð, þ.m.t.  framsetning fjárhagslegra upplýsinga.
  • Vinna við gerð verkferla og undirbúningur að mótun þjónustustefnu Akraneskaupstaðar.
  • Almenn þjónustustörf, s.s. undirbúningur funda, bréfaskriftir og gerð auglýsinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af vinnu við samantekt og framsetningu fjárhagslegra upplýsinga.
  • Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfi og heimasíðugerð.
  • Mikil færni í notkun Microsoft Office hugbúnaðar; sérstök hæfni í notkun Excel töflureiknis.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinar Adolfsson, sviðsstjóri í síma 433-1000 eða í tölvupósti. Sótt er um rafrænt á heimsíðu Akraneskaupstaðar. 

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar nk.

Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.  


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00