Fara í efni  

Laust starf þroskaþjálfa í búsetuþjónustu

Garðalundur. Ljósmynd: Finnur Andrésson.
Garðalundur. Ljósmynd: Finnur Andrésson.

Búsetuþjónusta Akraneskaupstaðar óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í vaktavinnu í 75-80% stöðu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem helstu verkefni og ábyrgð eru:

  • Aðstoð við fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs.
  • Skipulagning og framkvæmd á sérhæfðum verkefnum og sérhæfðri þjálfun í samvinnu við forstöðu- og yfirþroskaþjálfa og aðra starfsmenn í teymi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á málefnum fólks með fötlun.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar.

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 13. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Mist Gunnarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi í tölvupósti eða í síma 431-1366 milli kl. 8-16 alla virka daga. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00