Fara í efni  

Laust starf leikskólakennara í Teigaseli

Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Teigasel. Um er að ræða 100% stöðu til fastráðningar sem er laus frá 1. júní 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Teigasel er þriggja deilda leikskóli sem býður upp á opinn efnivið í þeim tilgangi að hvetja barnið til gagnrýnnar hugsunar og örva um leið sköpunar- og leikgleði þess.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntun og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun 
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi og góð íslenskukunnátta

Hér er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið teigasel@akranes.is eða í síma 433-1280.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00