Fara í efni  

Laust starf leikskólakennara á Akraseli

Börn af leikskólanum Akraseli í gönguferð á Breið.
Börn af leikskólanum Akraseli í gönguferð á Breið.

Leikskólakennari óskast til starfa. Um er að ræða 100% stöðu sem er nú þegar laus. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntun og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun 
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
  • Færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
  • Stundvísi og góð íslenskukunnátta

Hér er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti eða í síma 433-1260.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00