Fara í efni  

Laust starf leiðbeinanda í leikskólanum Garðaseli

Laus er til umsóknar 50 % starf leiðbeinandi í afleysingar. Vinnutími er frá kl. 9.00-13.00 og er staðan laus frá og með 8. ágúst 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og stéttarfélaga leiðbeinenda.

Garðasel er þriggja deilda leikskóli með um 74 nemendur og um 22 starfsmenn. Garðasel er heilsuleikskóli með áherslu á hreyfingu, holla næringu og listsköpun í leik og starfi.

Hæfniskröfur 

  • Reynsla af leikskólastarfi æskileg 
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni í samskiptum 
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Stundvísi og góð íslenskukunnátta

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 27. júní n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið gardasel@akranes.is eða í síma 433-1240.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00