Fara í efni  

Laust starf kennara í Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli.
Brekkubæjarskóli.

Brekkubæjarskóli auglýsir eftir kennara í 50% stöðu fyrir skólaárið 2016-2017. Aðalkennslugrein er heimilisfræði. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) og Samninganefndar sveitarfélaga (SNS).

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 440 talsins, en starfsmenn tæplega áttatíu. Skólastefna í Brekkubæjarskóla ber heitið „Góður og fróður“ og byggir á sýn skólans. Skólastefnan er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans.

Menntun og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi
  • Þekking og reynsla af heimilisfræðikennslu er kostur
  • Góðir skipulagshæfileikar

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní n.k.  

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri í tölvupósti á netfangið arnbjorg.stefansdottir@akranes.is eða í síma 433-1300.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00