Fara í efni  

Laust starf deildarstjóra skóladagvistar í Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli auglýsir laust starf deildarstjóra skóladagsvistar. Um er að ræða 75% stöðu sem er laus frá 1. ágúst 2016. Laun eru samkvæmt Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og viðkomandi stéttarfélags. 

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 440 talsins, en starfsmenn tæplega áttatíu. Skólastefna í Brekkubæjarskóla ber heitið „Góður og fróður“ og byggir á sýn skólans. Skólastefnan er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og ábyrgð á starfsemi skóladagvistar fyrir 6-9 ára börn
  • Skipulagning starfsins í samráði við börn og starfsfólk 
  • Samskipti og samstarf við aðila skólasamfélagsins á Akranesi
  • Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn í samráði við skólastjóra
  • Umsjón með starfsmannamálum
  • Umsjón og ábyrgð með rekstri skóladagvistar í samráði við skólastjóra

Menntun og hæfniskröfur

  • Háskólapróf á uppeldissviði, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði, eða sambærileg menntun
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
  • Áhugi á frístundastarfi með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði, skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • Reynsla af stjórnun er kostur

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 27. júní n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri í tölvupósti á netfangið arnbjorg.stefansdottir@brekkubaejarskoli.is eða í síma 433-1300.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00