Fara í efni  

Laust starf deildarstjóra í leikskólanum Teigaseli

Leikskólinn Teigasel
Leikskólinn Teigasel

Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Teigasel.  Um er að ræða 100% stöðu frá og með 1. ágúst 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Teigasel er þriggja deilda leikskóli sem býður upp á opinn efnivið í þeim tilgangi að hvetja barnið til gagnrýnnar hugsunar og örva um leið sköpunar- og leikgleði þess.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:

  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og áhugasemi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi og góð íslenskukunnátta

Hér er hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð.  Athygli er vakin á því að starfið hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2016. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið teigasel@akranes.is eða í síma 433-1280.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00