Fara í efni  

Laust starf byggingarfulltrúa

Gamli vitinn á Breið.
Gamli vitinn á Breið.
Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi bæjarfélagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.

Helstu verkefni:

  • Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum bæjarins
  • Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku og afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum
  • Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga
  • Samskipti við hagsmunaaðila
  • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, þá helst verkefni er lúta að skipulagsmálum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010
  • Æskilegt er að viðkomandi sé með réttindi í skipulagsmálum sbr. 7. gr. skipulagslaga nr.123/2010
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu og reynslu á sviði byggingarmála
  • Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Microstation eða AutoCAD
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni ásamt frumkvæði og öguðum vinnubrögðum í starfi

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsóknarfrestur til 9. desember 2015 og skal sótt um starfið á heimasíðu Hagvangs.

Upplýsingar um starfið veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00