Fara í efni  

Laust starf aðstoðarskólastjóra Grundaskóla

Aðstoðarskólastjóri óskast til starfa í Grundaskóla frá og með 1. ágúst 2016. Grundaskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur og 100 starfsmenn. Í Grundaskóla er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Í Grundaskóla eru gerðar kröfur til nemenda og starfsfólks um dugnað, reglusemi, góða umgengni, góða ástundun og gagnkvæma virðingu. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Staðgengill skólastjóra
  • Mannauðsstjórnun, þ.e. starfsmannamál
  • Vinnur við endurmenntunaráætlun, gæðamat og sjálfsmat skólans.
  • Situr í nemendaverndarráði
  • Umsjón með stundaskrárgerð og námsmati

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og kennslufræða
  • Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum

Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.  Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Skólastjórafélags Íslands (SÍ) og Samninganefndar sveitarfélaga (SNS). 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Arnar Sigurðsson aðstoðarskólastjóri í tölvupósti á netfangið sigurdur.arnar.sigurdsson@akranes.is eða í síma 433-1400. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2016. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00