Fara í efni  

Laust starf aðstoðarmatráðs í Leikskólanum Teigaseli

Leikskólinn Teigasel.
Leikskólinn Teigasel.

Aðstoðarmatráður óskast til starfa í Leikskólann Teigasel. Um er að ræða 75% stöðu til fastráðningar sem er laus frá og með 1. desember næstkomandi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vakinn er athygli á að starfið hentar jafnt konum sem körlum. 

Teigasel er þriggja deilda leikskóli með 72 börn og hóp af metnaðarfullu starfsfólki. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynslu af vinnu í eldhúsi (matur og bakstur)
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Stundvísi og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og áhugasemi

Í fjarveru matráðs sér viðkomandi um eldhús og ber ábyrgð á starfinu þar.

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1 hæð. Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið margret.thora.jonsdottir@teigasel.is eða í síma 433-1280.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00