Fara í efni  

Laust starf aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóra í leikskólanum Teigaseli

Börn frá Leikskólanum Teigaseli í skoðunarferð um Breiðina.
Börn frá Leikskólanum Teigaseli í skoðunarferð um Breiðina.

Aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri óskast til starfa í leikskólann Teigasel. Um er að ræða tímabundið 100% starf frá 1. desember 2015 - 30. júní 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og kennarasambands Íslands.  

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfs. 
  • Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans. 
  • Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans. 
  • Bera ábyrgð á utanumhaldi sérkennslu, samskipti við sérfræðiþjónustu, prófanir, þjálfun og vinna með snemmtæk íhlutun í málörvun.
  • Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra. 
  • Vera faglegur leiðtogi. 
  • Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum. 

Menntun og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari. 
  • Leikskólasérkennaramenntun og reynsla af stjórnun er æskileg.
  • Reynsla af því að vinna með sérkennslu í leikskólum og snemmtæka íhlutun í málörvun
  • Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða. 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 
  • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf. 
  • Góð tölvu- og íslenskukunnátta

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti eða í síma 433-1280.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00