Fara í efni  

Laust starf aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóra í leikskólanum Akraseli

Akranesviti og leikskólabörn frá Leikskólanum Akraseli.
Akranesviti og leikskólabörn frá Leikskólanum Akraseli.

Aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri óskast til starfa í leikskólann Akrasel. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og kennarasambands Íslands.  

Akrasel er grænfánaleikskóli sem leggur áherslu á umhverfismennt, útikennslu, jóga, hollt mataræði og snemmtæka íhlutun í málörvun. Kjörorð leikskólans er: NÁTTURA – NÆRING –NÆRVERA. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfs. 
  • Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans. 
  • Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans. 
  • Bera ábyrgð á utanumhaldi sérkennslu, samskipti við sérfræðiþjónustu, prófanir og þjálfun. 
  • Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra. 
  • Vera faglegur leiðtogi. 
  • Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum. 

Menntun og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari. 
  • Leikskólasérkennaramenntun og reynsla af stjórnun er æskileg.
  • Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða. 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 
  • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf. 
  • Góð tölvu- og íslenskukunnátta.

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið akrasel@akranes.is eða í síma 433-1260.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00