Fara í efni  

Lausar stöður í búsetuþjónustu fatlaðra á Akranesi

Akratorg.
Akratorg.

Búsetuþjónusta Akraneskaupstaðar óskar eftir að ráða starfsfólk í vaktavinnu í 70% – 75% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun september. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem helstu verkefni og ábyrgð eru:

  • Aðstoð við fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs.
  • Skipulagning og framkvæmd á sérhæfðum verkefnum og sérhæfðri þjálfun í samvinnu við forstöðu- og yfirþroskaþjálfa og aðra starfsmenn í teymi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að viðkomandi hafi uppeldismenntun eða sambærilega háskólamenntun sem nýtist í starfi. Ef ekki fæst starfsfólk með fagmenntun kemur til greina að ráð ófaglært fólk.
  • Reynsla og þekking á málefnum fólks með fötlun.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar.

Sótt er um á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Mist Gunnarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi í tölvupósti eða í síma 433-1366 milli kl. 8-16 alla virka daga.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00