Fara í efni  

Laus störf leikskólakennara í Vallarseli

Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Vallarsel. Um er að ræða tvær 100% stöðu til fastráðningar sem er lausar frá 8. ágúst 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Vallarsel er 6 deilda tónlistarleikskóli og kjörorð leikskólans er: „Syngjandi glöð í leiks og starfi“.  Við skólann starfar glaður og samheldinn starfsmannahópur. 

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntun og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun 
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi og góð íslenskukunnátta

Hér er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynhildur Björg Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið vallarsel@akranes.is eða í síma 433-1220.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00