Fara í efni  

Laus störf í búsetuþjónustu fatlaðra

Akranes.
Akranes.

Lausar eru til umsóknar stöður í vaktavinnu í búsetuþjónustu fatlaðra á Akranesi. Starfshlutföll eru á bilinu 60 – 90%, frá 1. september 2015. Um er að ræða krefjandi störf og er æskilegt að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á málefnum fólks með fötlun. Umsækjandi þarf að geta skilað sakarvottorði. Krafist er skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða og færni í mannlegum samskiptum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí næstkomandi. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að skila inn umsókn í þjónustuver Akraneskaupstaðar.

Nánari upplýsingar veitir Bylgja Mist Gunnarsdóttir í tölvupósti eða í síma 431-1366 milli kl. 8-16.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00