Fara í efni  

Laus störf í Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 430 talsins, en starfsmenn tæplega áttatíu. Skólastefna í Brekkubæjarskóla ber heitið „Góður og fróður“ og byggir á sýn skólans. Skólastefnan er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans.

Brekkubæjarskóli auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar fyrir skólaárið 2016-2017
  • Starf umsjónarkennara á yngsta stigi, 80% afleysingastaða. 
  • Starf umsjónarkennara á miðstigi, 80% afleysingastaða. 
  • Starf myndmenntakennara, 80% staða til fastráðningar.
Menntun og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum 
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi
  • Reynsla af kennslu í Byrjendalæsi og Orð af orði er kostur (á við um auglýsta stöður umsjónarkennara á mið og yngstastigi)

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl n.k. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) og Samninganefndar sveitarfélaga (SNS).

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri í tölvupósti á netfangið arnbjorg.stefansdottir@akranes.is eða í síma 433-1300.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00