Fara í efni  

Laus staða við sambýlið á Laugarbraut 8 Akranesi

Laus staða er til umsóknar á Sambýlinu við Laugarbraut 8 Akranesi. Um er að ræða 84% stöðugildi. Unnið er á dag-, kvöld- og helgarvöktum (aðra hverja helgi). Starfið er laust þann 1. ágúst næstkomandi og þyrfti aðlögun að vera í lok júlímánaðar. 

Starfið felur í sér stuðning við einstaklinga með fötlun í athöfnum daglegs lífs, á heimili þeirra og við tómstundir. Mikilvægt er að viðkomandi starfsmaður sé jákvæður, hafi góða færni í mannlegum samskiptum og hafi áhuga á að starfa með fólki með fötlun. Einnig þarf viðkomandi að vera stundvís og sýna öguð vinnubrögð. 

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí næstkomandi. Nánari upplýsingar gefur Jórunn Petra Guðmundsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í tölvupósti.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00