Fara í efni  

Laus afleysingastaða leiðbeinanda í Leikskólanum Garðaseli

Leikskólinn Garðasel.
Leikskólinn Garðasel.

Leikskólinn Garðasel auglýsir lausa 50% stöðu leiðbeinanda til að sinna fastri afleysingu í skólanum næsta skólaár. Vinnutíminn er 12.00-16.00 alla virka daga og ráðningartíminn 20. ágúst 2015 - 30. júní 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Hæfniskröfur:

  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni í samskiptum 
  • Stundvísi, dugnaður og áreiðanleiki í starfi
  • Reynsla af starfi með ungum börnum kostur

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti eða í síma 899-2613.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00