Fara í efni  

Tímaáætlun landsbyggðarvagna ekki óbreytt

Vegagerðin hefur nú tilkynnt að breytingar verði á akstri landsbyggðarvagna Strætó vegna lokunar Hvalfjarðarganga, en í gær bárust þær upplýsingar frá Vegagerðinni að tímaáætlun Strætó yrði óbreytt.


Eftirfarandi er tilkynning Vegagerðarinnar í heild:


Hvalfjarðargöng loka á næturnar næstu tvo mánuði vegna framkvæmda við lýsingu. Því verða breytingar á akstri landsbyggðarvagna á leiðum 50 og 59.

Breytingar á leið 50

Sunnudaga til fimmtudaga falla tvær síðustu ferðir dagsins niður.

Síðasta ferð dagsins á virkum dögum frá Mjódd kl. 20:54 er á mörkum þess að komast í gegnum göngin fyrir lokun þeirra klukkan 21:30 en fengist hefur undanþága til að aka þar í gegn .

Í umfjöllun um málið hefur verið vísað til þess að strætó hafi almenna undanþágu frá lokuninni. Rétt er að undanþágan á aðeins við um þessa tilteknu ferð samkvæmt gildandi tímatöflu. Aðrar ferðir falla niður í samræmi við lokunartíma.

Ferðir sem falla niður mánudaga til fimmtudaga:

20:34 Borgarnes-Mjódd

22:00 Borgarnes-Mjódd

22:09 Mjódd-Borgarnes

23:35 Mjódd-Akranes

 

Ferðir sem falla niður á sunnudögum:

19:40 Borgarnes-Mjódd

21:40 Akranes-Mjódd

21:20 Mjódd-Borgarnes

22:50 Mjódd-Akranes

 

Breytingar á leið 59

Sunnudagsferð verður flýtt um 10 mínútur frá Borgarnesi og Hólmavík.

Á akstursleiðinni Hólmavík-Borgarnes mun vagninn tengjast leið 57 kl.19:30 í Borgarnesi í stað leiðar 50 kl.19:40.

Áætlun breytist eftirfarandi:

Brottför Borgarnes verður 14:50 í stað 15:00

Brottför Hólmavík verður 17:03 í stað 17:13


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu