Fara í efni  

Kynningarmyndbönd um fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar

Gerð hafa verið fjögur kynningarmyndbönd um fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018. Er hér um að ræða nýjung í upplýsingastreymi til bæjarbúa undir heitinu „Í hvað fara krónurnar okkar?“ Myndböndin veita upplýsingar um einstaka málaflokka innan stjórnsýslunnar, þ.e. skipulags- og umhverfismál, menningar- og safnamála, skóla- og frístundamál, velferðar- og mannréttindamál, stjórnsýslu- og fjármál og atvinnu- og ferðamál. 

Það var Muninn kvikmyndagerð ehf. sem sá um framleiðslu efnisins og Margrét Blöndal sem talar inn á myndbönd ásamt Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra.

Myndböndin eru aðgengileg hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar  


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00