Fara í efni  

Lokið - Kynningarfundur um skipulagsmál - Akraneshöfn og Grenjar hafnarsvæði

Almennur íbúafundur verður haldinn í bæjarþingsalnum þriðju hæð að Stillholti 16-18, miðvikudaginn 2. maí næstkomandi og hefst hann kl. 18:00. Kynntar verða breytingar á aðal- og deiliskipulagi eftirfarandi svæða:

Akraneshöfn - aðalhafnargarður

Fyrirhuguð breyting felst m.a. í nýjum hafnarbakka með 220 m viðlegu, þ.e. 90 m lenging á núverandi bakka. Brimvarnargarður er lengdur um 60 m. Öldudeyfing milli Aðalhafnargarðs og Bátabryggju lagfærð og bætt.

Grenjar hafnarsvæði

Fyrirhuguð breyting felst m.a. í stækkun landfyllingar um 12-13.000 m2 til norðausturs út í Krókalón. Breytingin er til að stækka lóðina Bakkatún 30 svo mögulegt verði að heimila þar stækkun á iðnaðarbyggingu um 4000 m2.

Allir velkomnir - heitt á könnunni!
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00