Fara í efni  

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosningar 26. maí 2018

Kosningar til Alþingis fara fram laugardaginn 26. maí næstkomandi. Kjörskrá á Akranesi hefur nú verið samþykkt og lögð fram af bæjarstjórn Akraness. Kjósendur á kjörskrá á Akranesi eru þeir sem eiga þar skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.

Kjörskráin liggur frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð, frá og með 16. maí næstkomandi og er þar opin almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma fram til kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.

Alls eru á kjörskrá 5.183 einstaklingar, þar af 2.638 karlar og 2.545 konur.

Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt til kjördags gert leiðréttingar á kjörskrá ef við á.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00