Fara í efni  

Kjörskrá vegna forsetakosninga 25. júní 2016

Forsetakosningar fara fram 25. júní n.k. Kjörskrá hefur verið lögð fram í bæjarstjórn og samþykkt. Kjörskráin er opin almenningi til skoðunar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð, á skrifstofutíma frá og með 15. júní fram til kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraneskaupstaðar, netfang stjornsysla@akranes.is

Athygli er vakin á því að hægt er að gera leiðréttingar á kjörskrá allt til kjördags ef við á.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00