Fara í efni  

Kjörskrá vegna Alþingiskosninga 25. september 2021

Kosningar til Alþingis fara fram 25. september næstkomandi. Kjörskrá á Akranesi hefur nú verið lögð fram og samþykkt. Kjörskráin liggur frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Dalbraut 4, 1. hæð, á skrifstofutíma frá og með 15. september næstkomandi til kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraneskaupstaðar (433-1020, netfang: steinar.adolfsson@akranes.is ).

Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt til kjördags gert leiðréttingar á kjörskrá ef við á.

Akranesi, 9. september 2021

 

 

YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESS

 

Hugrún O. Guðjónsdóttir, formaður

Einar Gunnar Einarsson

Björn Kjartansson

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu