Fara í efni  

Kaup Akraneskaupstaðar á landi Akrakots

Undirritaður var samingur um kaup Akrakaupstaðar á landi Akrakots sem er í Hvalfjarðarsveit í jaðri Akraness í gær 7. febrúar 2023. Var það í framhaldi af bæjarstjórnarfundi þar sem kaupin voru samþykkt af öllum bæjarfulltrúum í bæjarstjórn Akraness. Viðstödd undirritunina voru systkinin frá Akrakoti,, sem seljendur, bæjarstjórn, bæjarstjóri, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og ráðgjafi seljenda Akrakots.

Akraneskaupstaður hefur áhuga á að í framtíðinni muni rísa á landinu íbúabyggð sérbýla þ.e. einbýlishús og par-/raðhús, en kaupin eru ætluð til að tryggja m.a. um 40% hlutfall sérbýla í bæjarfélaginu. Með þessu vil Akraneskaupstaður tryggja til langs tíma eðlilega framþróun bæjarfélagsins.

Seljendur Akrakots: Ellert Björnsson, Eufemía Berglind Guðnadóttir, Ása María Björnsdóttir, Ólafur Rúnar Björnsson, Björn Björnsson, Guðrún Björnsdóttir, Ólafía Guðrún Björnsdóttir og Hjördís Hólm Björnsdóttir.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar: Líf Lárusdóttir, Valgarður Lyngdal Jónsson, Ragnar. B. Sæmundsson, Einar Brandsson, Kristinn Sveinsson, Liv Aase Skarstad, Guðm. Ingþór Guðjónsson, Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Sædís Alexía Sigurmundsdóttir.

Bæjarstjóri: Sævar Freyr Þráinsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs: Sigurður Páll Harðarsson

Ráðgjafi seljenda Akrakots: Ingólfur Árnason

Frá undirritun samnings

Frá undirritun samnings


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00