Fara í efni  

Jólin kvödd á Akranesi og Íþróttamaður Akraness 2015 krýndur

Þrettándagleði á Akranesi árið 2016.
Þrettándagleði á Akranesi árið 2016.

Þrettándinn var haldinn hátíðlegur á Akranesi í gær, þann 11. janúar, með hinni árlegu þrettándabrennu sem innhélt álfadans, jólasöng, jólasveina, Grýlu og Leppalúða og fleiri furðulegar verur. Líkt og hefð er fyrir hófst blysför með trommuslætti við Þorpið og var þaðan gengið niður að Jaðarsbökkum. Lögreglan fylgdi göngunni áleiðis. Glæsileg flugeldasýning var að lokinn brennu í boði Akraneskaupstaðar og sá Björgunarfélag Akraness um framkvæmdina og var sýningunni vel fagnað af áhorfendum.

Eftir brennu streymdu gestir í íþróttahúsið að Jaðarsbökkum og fylgdust með krýningu Íþróttamanns Akraness árið 2015. Glæsilegur hópur fékk tilnefningu en það var sundkappinn Ágúst Júlíusson sem var kjörinn Íþróttamaður Akraness 2015 og fékk Friðþjófsbikarinn. Þetta er í annað sinn sem Ágúst er kjörinn. Ágúst átti mjög gott sundár en hann varð fjórfaldur Íslandsmeistari í flugsundi í 50 og 100 metrum og náði langþráðu markmiði um að komast í landslið Íslands fyrir Smáþjóðaleikana þar sem hann skipaði mikilvægt hlutverk í boðsundliði landsliðsins þar sem Ísland landaði silfri.  Í öðru sæti í kjörinu hafnaði Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur og í þriðja sæti varð Egill Guðvarður Guðlaugsson badmintonmaður.  

Akraneskaupstaður færir Ágústi og öllum þeim sem voru tilnefndir hamingjuóskir. Einnig sendir Akraneskaupstaður þakkir til Björgunarfélags Akraness, Þorpsins og Tónlistarskólans á Akranesi fyrir þeirra þátttöku í þrettándagleðinni.

Myndir sem teknar voru af Myndasmiðjunni má skoða hér.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00