Fara í efni  

Jólaljósin á Akratorgi tendruð

Jólaljósin tendruð á Akratorgi
Jólaljósin tendruð á Akratorgi

Margt var um manninn á Akratorgi síðast liðinn laugardag þegar jólaljósin á Akratorgi voru tendruð við hátíðlega athöfn. Skólakór skipaður yngri nemendum Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. 

Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar, aðstoðaði Viktor Óttar Guðmundsson við að kveikja ljósin á jólatrénu en Viktor átti einmitt 5 ára afmæli sama dag. Jólatréið sem prýðir torgið í ár var gróðursett í landi Stóru-Fellsaxlar norðan megin við Akrafjall.

Eftir að ljósin á trénu voru kveikt tók Samúel Þorsteinsson nokkur vel valin jólalög og fljótlega birtust nokkrir þrælviltir jólasveinar sem virtust ekki alveg átta sig á því að þeirra tími væri ekki kominn. Þeir létu það ekki á sig fá og tóku nokkur lög með mannfjöldanum og laumuðu mandarínum í lófa barnanna áður en þeir hurfu aftur á braut.

Hér má sjá svipmyndir frá hátíðahöldunum sem Myndsmiðjan fangaði.

Jólaljósin tendruð á AkratorgiValgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar og Viktor Óttar Guðmundsson afmælisbarnJólasveinar á AkratorgiJólasveinar á AkratorgiJólasveinar á Akratorgi


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00